|
Hans klaufi um Verslunarmannahelgina |
|
|
|
|
Fimmtudagur, 29. Júlí 2010 14:28 |
 Leikhópurinn Lotta verður á ferð og flugi um Verslunarmannahelgina með leiksýninguna sína Hans klaufa. Laugardaginn 31. júlí verður Hans klaufi sýndur á Flúðum klukkan 13 og á Laugarvatni klukkan 17 og á sunnudaginn 1. ágúst í Munaðarnesi klukkan 13 og í Húsafelli klukkan 17. Verkið skrifaði Ljóti hálfvitinn Snæbjörn Ragnarsson en auk Hans klaufa koma við sögu aðrar þekktar persónur úr ævintýraheiminum.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
Leikfélagið Sýnir sýnir Allir komu þeir aftur á artFart í ágúst. |
|
|
|
|
Þriðjudagur, 27. Júlí 2010 09:43 |
 Leikfélagið Sýnir er áhugaleikfélag sem starfar á landsvísu. Það var stofnað árið 1997 af hópi fólks sem hafði verið á fyrstu námskeiðum Leiklistarskóla Bandalags Íslenskra Leikfélaga. Hópurinn að þessu sinni æfir nú af kappi, undir leiðsögn Aldísar Davíðsdóttur, leikritið Allir komu þeir aftur í Elliðárdalnum í Indiánagili. Verkið sem er byggt lauslega á leikritinu Widows eftir Ariel Dorfman og Tony Kushner, er einnig partur af BA ritgerð Aldísar en hún kemur til með að útskrifast úr Rose Bruford Collage í London árið 2011.
|
|
Lesa meira...
|
|
Þjónustumiðstöðin lokar frá 8.-17. ágúst |
|
|
|
|
Föstudagur, 23. Júlí 2010 14:54 |
|
Þjónustumiðstöð Bandalags íslenskra leikfélaga að Suðurlandsbraut 16 í Reykjavík verður lokuð frá og með mánudeginum 8. ágúst vegna NEATA-leiklistarhátíðarinnar á Akureyri.
Opnað verður aftur kl. 9.00 þriðjudaginn 17. ágúst.
Pantanir þurfa að berast fyrir kl. 13.00 föstudaginn 6. ágúst til að verða afgreiddar fyrir lokun. |
|
Fröken Fix sýnir Ómynd í ágúst |
|
|
|
|
Mánudagur, 12. Júlí 2010 13:13 |
 Leikhópurinn Fröken Fix var stofnaður vorið 2009 af Aldísi Davíðsdóttur og Guðrúnu Sóley Sigurðardóttur. Aðalstefna Fröken Fix er að sjá um allt sem við kemur sýningum sjálfar. Þær leikstýra, leika, sjá um leikmynd, búninga og allt sem mögulega tengist sýningum. Tvíeykið vann að uppsetningu leikritsins Bergmál hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar sem sýnt var í ágústmánuði 2009 og fengu þá aðstoð karlleikarans Halldórs Magnússonar sem lék í verkinu.
|
|
Lesa meira...
|
|
Ari Matthíasson nýr framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins |
|
|
|
|
Miðvikudagur, 07. Júlí 2010 14:11 |
 Starf framkvæmdastjóra við Þjóðleikhúsið var auglýst laust til umsóknar í lok maímánaðar og rann umsóknarfrestur út þann 14. júní síðastliðinn. Tuttugu og fimm umsóknir bárust, en niðurstaða um ráðningu liggur fyrir og mun Ari hefja störf þegar leikhúsið tekur aftur til stafa að loknu sumarleyfi. Ari er menntaður leikari, með BFA gráðu í leiklist frá Leiklistarskóla Íslands, MBA gráðu í stjórnun og rekstri frá Háskólanum í Reykjavík og M.Sc gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands.
|
|
Lesa meira...
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 210 |