BÍL

Gagnrýni

(05.02.12)
Biblíusögur á Eyjarslóð
Hugleikur Sá glataði Leikstjóri: Ágústa Skúladóttir Tíu Hugleikarar...
(28.11.11)
Jólastemmningin er í Bæjarleikhúsinu
Verkstæði jólasveinannaLeikfélag MosfellsbæjarLeikstjóri: Stefán Bjarnarson Það...
(01.11.11)
Skemmtilegir Rúar og Stúar á Selfossi
Rúi og Stúi Leikfélag SelfossLeikstjórn: F....
AthyglisverdastaBanner12
Arsrit2011_banner
askriftbanner

aboutus.png

Leit á vefnum

Nýjar fréttir

(08.02.12)
Baðstofan frumsýnd í Félagslundi á Reyðarfirði
Föstudaginn 10.02 frumsýnir Leikfélag Reyðarfjarðar...
(08.02.12)
Gói og Ævintýrin: Baunagrasið frumsýnt
Þann 11. febrúar næstkomandi kl....
(07.02.12)
Klerkar í klípu í Biskupstungum
Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna frumsýnir gamanleikritið...
(07.02.12)
Borgarleikhúsið auglýsir eftir samstarfsverkefnum
Borgarleikhúsið hýsir á hverju ári...
(06.02.12)
Freyvangsleikhúsið æfir Himnaríki
Æfingar á aðalverkefni Freyvangsleikhússin, Himnaríki...
(06.02.12)
Halaleikhópurinn frumsýnir Hassið hennar mömmu
Föstudaginn 10. febrúar frumsýnir Halaleikhópurinn...
(03.02.12)
Örverkahátíðin Feigð hjá Leikfélagi Hafnarfjarðar
Leikfélag Hafnarfjarðar stendur að örverkahátíð...
SendaFrett
Baðstofan frumsýnd í Félagslundi á Reyðarfirði
Miðvikudagur, 08. febrúar 2012 11:06
 

badstofanFöstudaginn 10.02 frumsýnir Leikfélag Reyðarfjarðar nýtt íslenskt verk, Baðstofuna eftir Gunnar Ragnar Jónsson. Í litlu koti í afskekktum dal húkir fjölskylda og lifir á litlu. Eftir að morð er framið á bæ í nágrenninu ber förumann að garði. Við það færist fjölbreytni í líf fjölskyldunnar og undarlegir atburðir fara að gerast. Hér er á ferðinni gamansamur leikur að þjóðsagnaarfi þjóðarinnar með tilheyrandi drunga og spennu.

Nánar...
 
Gói og Ævintýrin: Baunagrasið frumsýnt
Miðvikudagur, 08. febrúar 2012 11:05
 

baunagrasÞann 11. febrúar næstkomandi kl. 13 verður leikritið Baunagrasið frumsýnt á Litla sviðinu. Gói og Þröstur opna dyr leikhússins upp á gátt fyrir öllum landsmönnum, ungum sem öldnum og ferðast um töfraheim ævintýranna. Á ferðalaginu nýta þeir til hins ýtrasta leik, söng og dans og bregða sér í allra kvikinda líki í anda furðusagnanna. Fyrst komu Eldfærin – nú er það Baunagrasið. Eldfærin hlutu tvær tilnefningar til Grímunnar á síðasta ári, sem áhorfendasýning ársins og barnasýning ársins.

Nánar...
 
Klerkar í klípu í Biskupstungum
Þriðjudagur, 07. febrúar 2012 13:43
 

klerkar_i_klipuLeikdeild Ungmennafélags Biskupstungna frumsýnir gamanleikritið Klerkar í klípu eftir Philip King, í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundsonar en þetta er fimmta leiksýningin sem Gunnar Björn setur upp hjá leikdeildinni. Sýningar eru í Aratungu og hefjast kl. 20.30, á undan sýningum er boðið upp á leikhúsmatseðil á Kaffi Kletti í Reykholti.

Nánar...
 
Borgarleikhúsið auglýsir eftir samstarfsverkefnum
Þriðjudagur, 07. febrúar 2012 13:27
 

borgoBorgarleikhúsið hýsir á hverju ári a.m.k. tvö verkefni sjálfstæðra leikhópa. Verkefnin eru valin í samvinnu við borgaryfirvöld og stjórn Sjálfstæðu leikhúsanna. Samkvæmt samkomulagi Leikfélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar skal Leikfélag Reykjavíkur „tryggja hið minnsta tveimur öðrum leikflokkum afnot af húsnæði í Borgarleikhúsinu til æfinga og sýninga eins verkefnis á hverju ári. Leikflokkarnir skulu hafa endurgjaldslaus afnot af húsnæði en greiða útlagðan kostnað L.R. vegna vinnu þeirra í Borgarleikhúsinu“.

Nánar...
 
info@leiklist.is - sími: 551-6974 / 562-2944 - Fax: 562-2984 - Kleppsmýrarvegur 8 104 Reykjavik - kt. 440169-0239 - Vefstjori: lensherra@leiklist.is