|
Baðstofan frumsýnd í Félagslundi á Reyðarfirði |
|
Miðvikudagur, 08. febrúar 2012 11:06 |
|
Föstudaginn 10.02 frumsýnir Leikfélag Reyðarfjarðar nýtt íslenskt verk, Baðstofuna eftir Gunnar Ragnar Jónsson. Í litlu koti í afskekktum dal húkir fjölskylda og lifir á litlu. Eftir að morð er framið á bæ í nágrenninu ber förumann að garði. Við það færist fjölbreytni í líf fjölskyldunnar og undarlegir atburðir fara að gerast. Hér er á ferðinni gamansamur leikur að þjóðsagnaarfi þjóðarinnar með tilheyrandi drunga og spennu.
|
|
Nánar...
|
|
Gói og Ævintýrin: Baunagrasið frumsýnt |
|
Miðvikudagur, 08. febrúar 2012 11:05 |
|
Þann 11. febrúar næstkomandi kl. 13 verður leikritið Baunagrasið frumsýnt á Litla sviðinu. Gói og Þröstur opna dyr leikhússins upp á gátt fyrir öllum landsmönnum, ungum sem öldnum og ferðast um töfraheim ævintýranna. Á ferðalaginu nýta þeir til hins ýtrasta leik, söng og dans og bregða sér í allra kvikinda líki í anda furðusagnanna. Fyrst komu Eldfærin – nú er það Baunagrasið. Eldfærin hlutu tvær tilnefningar til Grímunnar á síðasta ári, sem áhorfendasýning ársins og barnasýning ársins.
|
|
Nánar...
|
|
Klerkar í klípu í Biskupstungum |
|
Þriðjudagur, 07. febrúar 2012 13:43 |
|
Leikdeild Ungmennafélags Biskupstungna frumsýnir gamanleikritið Klerkar í klípu eftir Philip King, í leikstjórn Gunnars Björns Guðmundsonar en þetta er fimmta leiksýningin sem Gunnar Björn setur upp hjá leikdeildinni. Sýningar eru í Aratungu og hefjast kl. 20.30, á undan sýningum er boðið upp á leikhúsmatseðil á Kaffi Kletti í Reykholti.
|
|
Nánar...
|
|
Borgarleikhúsið auglýsir eftir samstarfsverkefnum |
|
Þriðjudagur, 07. febrúar 2012 13:27 |
|
Borgarleikhúsið hýsir á hverju ári a.m.k. tvö verkefni sjálfstæðra leikhópa. Verkefnin eru valin í samvinnu við borgaryfirvöld og stjórn Sjálfstæðu leikhúsanna. Samkvæmt samkomulagi Leikfélags Reykjavíkur og Reykjavíkurborgar skal Leikfélag Reykjavíkur „tryggja hið minnsta tveimur öðrum leikflokkum afnot af húsnæði í Borgarleikhúsinu til æfinga og sýninga eins verkefnis á hverju ári. Leikflokkarnir skulu hafa endurgjaldslaus afnot af húsnæði en greiða útlagðan kostnað L.R. vegna vinnu þeirra í Borgarleikhúsinu“.
|
|
Nánar...
|
|