BÍL
neata2010banner01

Póstlistar

Viltu gerast áskrifandi?
Leiklist.is - Vikupóstur
Fréttaskot BÍL
Skólapóstur



arsri2009tbanner
aboutus.png

Leit á vefnum

Nýjar fréttir

(29.07.10)
Hans klaufi um Verslunarmannahelgina
Leikhópurinn Lotta verður á ferð...
(27.07.10)
Leikfélagið Sýnir sýnir Allir komu þeir aftur á artFart í ágúst.
Leikfélagið Sýnir er áhugaleikfélag sem...
(23.07.10)
Þjónustumiðstöðin lokar frá 8.-17. ágúst
Þjónustumiðstöð Bandalags íslenskra leikfélaga að...
(12.07.10)
Fröken Fix sýnir Ómynd í ágúst
Leikhópurinn Fröken Fix var stofnaður...
(07.07.10)
Ari Matthíasson nýr framkvæmdastjóri Þjóðleikhússins
Starf framkvæmdastjóra við Þjóðleikhúsið var...
hugleikur.gif
mosfellssveit.gif
Upphafssíða Fréttir Námskeið & hátíðir
Námskeið & hátíðir
Alþjóðleg leiklistarhátíð á Akureyri 10-15. ágúst Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
logoneata2010small
Dagana 10.-15. ágúst heldur Bandalag íslenskra leikfélaga fjölþjóðlega leiklistarhátíð í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Hátíðin er á vegum NEATA, Norður-Evrópska áhugaleikhúsráðsins og verða þar sýndar leiksýningar frá öllum Norðurlöndunum, Lettlandi, Litháen, Rúmeníu og Frakklandi. Hátíðin verður sett að kvöldi þriðjudagsins 10. ágúst og verða allar leiksýningar og aðrir viðburðir hátíðarinnar í Menningarhúsinu Hofi. Alls er reiknað með að um 250 manns taki beinan þátt í hátíðinni.
Lesa meira...
 
Alþjóðleg leiklistarhátíð áhugamanna í Tromsö 2011 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
hotell_fyrverkeri_2Alþjóðlega áhugaleikhúsráðið, IATA, skipuleggur reglulega leiklistarhátíðir víðs vegar um heiminn, sú síðasta var haldin í Mónakó 2009. Næsta IATA-hátíð verður haldin í Tromsö í Noregi dagana 14. til 24. júlí 2011. Bandalag íslenskra leikfélaga hefur sótt um að senda íslenska sýningu á hátíðina og auglýsir hér með eftir leikfélögum sem hafa áhuga á að taka þátt. Ef fleiri en einn hópur sækir um verður skipuð dómnefnd sem velur milli umsækjenda.
Lesa meira...
 
Sýningar á NEATA-hátíðinni á Akureyri 10.-15. ágúst Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
hjarta
Þá liggur fyrir hvaða sýningar verða sýndar á NEATA-hátíðinni á Akureyri 10.–15. ágúst nk. Dómnefnd valdi sýninguna Umbúðalaust hjá Leikfélagi Kópavogs, sem opnunarsýningu hátíðarinnar og sýningar Birting hjá Leikfélagi Selfoss og Vínland hjá Freyvangsleikhúsinu þar að auki, en þrjá íslenskar sýningar verða á hátíðinni þar sem Eistland sá sér ekki fært að senda fulltrúa.
Lesa meira...
 
Umsóknarfrestur fyrir NEATA-hátíð á Akureyri er 15. febrúar Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

hjartaClick here for  English

Þann 15. febrúar nk. rennur út frestur fyrir aðildarfélög Bandalagsins til að sækja um að koma með sýningu á Norður-Evrópsku leiklistarhátíðina á Akureyri 10.–15. ágúst 2010. Á hátíðinni verða sýndar 2-3 íslenskar sýningar og mun valnefnd velja þær úr hópi umsækjenda. Þema hátíðarinnar er Maður – Náttúra og einkunnarorðin eru Af hjartans list. Hátíðin beinir sjónum að manneskjunni og samskiptum hennar við náttúruna, bæði hvað varðar óblíð náttúruöflin og mannlega náttúru; eilífa baráttu við hatur, ástríður, fordóma og svo mætti lengi telja. Tímalengd sýninga má ekki fara yfir 90 mínútur.

Lesa meira...
 
Námskeið í leikhúslýsingu fyrir áhugaleikhús Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
leikhuslys
Laugardagana 27. feb., 6.mars og 13. mars frá kl. 9:00 - 13:00 verður boðið upp á námskeið í leikhúslýsingu í Tækniskólanum, Skólavörðuholti. Námskeiðið er ætlað fólki á öllum aldri. Á námskeiðinu eru kennd helstu atriði við hönnun og uppsetningu lýsingar fyrir leiksýningar, tónleika, ráðstefnur o.fl. Fjallað er um eðlisfræði ljóss og litafræði, hugmyndafræði lýsingar, upphengingu og staðsetningar, leikhúsljós og önnur tæki, skipulag, teikningar og fleira. Kennari er Benedikt Axelsson lýsingahönnuður og námskeiðsgjald er 23.000 kr.
Lesa meira...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 10
info@leiklist.is - sími: 551-6974 / 562-2944 - Fax: 562-2984 - Suðurlandsbraut 16 108 Reykjavik - kt. 440169-0239 - Vefstjori: lensherra@leiklist.is