BÍL
neata2010banner01

Póstlistar

Viltu gerast áskrifandi?
Leiklist.is - Vikupóstur
Fréttaskot BÍL
Skólapóstur



arsri2009tbanner
aboutus.png

Leit á vefnum

Nýjar fréttir

(08.09.10)
Skepna frumsýnt á Norðurpólnum
Þann 10. September nk. hefjast...
(06.09.10)
Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum
Leikritunarsjóðurinn Prologos auglýsir eftir umsóknum...
(03.09.10)
Tjarnarbíó opnað 1. október
Eftir gagngerar endurbætur Reykjavíkurborgar mun...
(25.08.10)
Örverk um Ágúst eins og hann leggur sig
Áhugaleikhús atvinnumanna sýnir áttunda örverkið...
(19.08.10)
Leikfélagið Sýnir frumsýnir Allir komu þeir aftur
Leikfélagið Sýnir  frumsýnir leikverkið Allir...
hugleikur.gif
mosfellssveit.gif
Upphafssíða Fréttir Námskeið & hátíðir
Námskeið & hátíðir
Samþætting tækni í leikhúsinu Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

egill.jpgLeiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga auglýsir:

Umsóknarfrestur á námskeiðið Samþætting tækni í leikhúsinu hefur verið framlengdur til 4. maí

Með sífelldri þróun tölvutækninnar hafa orðið til leiðir og forrit sem gera manni kleift að flétta saman hljóð, ljós og myndband í eina heild og jafnvel nýja hluti með s.s. gagnvirka tækni. Þetta kallar á yfirsýn allra tækniþátta og auðvitað heildsteypta sýn á verkefnið. Með því að nýta sér þessa tækni, má búa til sýningar sem eru miklu flóknari og nákvæmari en ella og framkvæma galdra sem næstum væru óhugsandi ella.
Markmiðið með námskeiðinu er að þátttakendur fái innsýn í heim tæknisamþættingar eða ShowControl og geti eftir það notað tölvubúnað til samkeyrslu ljósa, hljóðs og myndbands.
Kennsla er í formi fyrirlestra, sýnikennslu, umræðna og verklegra æfinga. Kennari er Egill Ingibergsson.

Lesa meira...
 
Athyglisverðasta áhugasýning leikársins 2008-2009 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
husid_minna.jpgNú er runninn út frestur til að sækja um að koma til greina í vali Þjóðleikhússins á Athyglisverðustu áhugasýningunni og er þátttakan óvenju góð þetta árið, alls sækja 18 leikfélög um með 20 sýningar. Þjóðleikhússtjóri, Tinna Gunnlaugsdóttir, mun svo tilkynna niðurstöður dómnefndar á hátíðarkvöldverði aðalfundar Bandalagsins sem haldin verður á Hótel Hlíð í Ölfusi þann 1. maí nk.
Lesa meira...
 
Þjóðleikur – stærsta leiklistarhátíð Íslandssögunnar Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
thjodleikur.jpgStærsta leiklistarhátíð sem haldin hefur verið hérlendis fer fram á Egilsstöðum helgina 24.-26. apríl. Þar verða í boði 28 leiksýningar á vegum þrettán leikhópa ungs fólks sem allir hafa starfað undir merkjum Þjóðleiks, tilraunverkefnis á vegum fræðsludeildar Þjóðleikhússins og fleiri aðila, í vetur. Um 200 þátttakendur, víðsvegar að af Austurlandi koma saman á Egilstöðum og halda lokahátíð sína. Hóparnir hafa að undanförnu sett upp verk sín í heimabæjum sínum þar eystra, allt frá Vopnafirði til Hafnar í Hornafirði. Leikarar í sýningunum er á aldrinum 13-20 ára en stjórnendur þeirra hafa í vetur notið handleiðslu fagmanna frá Þjóðleikhúsinu.
Lesa meira...
 
Stuttverkahátíðin Margt smátt 23. maí 2009 Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar

margtsmatt2009.pngNú er komið að 5. stuttverkahátíðinni okkar, Margt smátt, í Borgarleikhúsinu. Hátíðin verður haldið laugardaginn 23. maí næstkomandi og verður hún með sama sniði og síðast, í október 2007, en mál manna var að sú hátíð hefði verið sérstaklega vel heppnuð.

 

Frestur til þess að tilkynna um þátttöku á hátíðinni er til föstudagsins 1. maí.

 

Senda skal Bandalaginu umsókn á eyðublaði sem hægt er að nálgast hér .Tekið skal fram að það er alls ekki skilyrði að um frumflutning á verki sé að ræða. Ef áhugi er fyrir að senda verk á hátíðina en ekkert ákveðið verk er fyrirliggjandi er um að gera að hafa samband við Ármann hjá þjónustumiðstöð Bandalagsins í síma 551 6974 eða Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. og fá aðstoð við val á verki.

 

Hátíðin sjálf verður frá klukkan 14.00-18.00 í Borgarleikhúsinu. Um kvöldið verður leigður salur úti í bæ til að halda samkvæmi þar sem afrekum dagsins verður fagnað, léttir réttir bornir á borð og skemmtiatriði á sviði. Leikfélög eru hvött til þess að grafa upp æfða þætti eða æfa nýja fyrir þetta tilefni. Miðað er við að hámarkslengd hvers verks verði u.þ.b. 15 mínútur. Ef svo vill til að of margir þættir berast til að hægt sé að halda tímaramma, munu þau félög sem senda flesta þætti verða beðin að fækka sínum verkum.Ef félögin luma á tónlistaratriðum eða annarri skemmtun sem hæfir í anddyri í anddyri Borgarleikhúsins (fyrir hátíð og/eða í hléi) eða í partíi kvöldsins eru þau beðin að láta vita sem fyrst. Getur það verið nánast hvað sem er, uppistand, tónlist, leiklist, uppákomur, innsetningar eða hvað sem ykkur dettur í hug að gæti skemmt fólki. Von okkar er að fólk taki við sér, fljótt og vel, svo við getum átt sýnt hið öfluga starf áhugaleikhússins í vor!

 

Ef frekari upplýsinga er þörf skaltu senda fyrirspurn á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

{j10_sb_discuss:3}

 
Margt smátt - Frestur til að tilkynna þátttöku Skoða sem PDF skjal Prenta út Senda hlekk á þessa síðu til vinar
borgo.jpgNú líður að 5. Margt smátt stuttverkahátíðinni okkar í Borgarleikhúsinu. Hátíðin verður haldin laugardaginn 23. maí næstkomandi og verður hún með sama sniði og síðast, í október 2007, en mál manna var að sú hátíð hefði verið sérstaklega vel heppnuð. Frestur til þess að tilkynna um þátttöku á hátíðinni er til föstudagsins 1. maí. Senda skal Bandalaginu umsókn á eyðublaði sem hægt verður að nálgast hér á leiklist.is eftir páska.
Lesa meira...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 4 af 10
info@leiklist.is - sími: 551-6974 / 562-2944 - Fax: 562-2984 - Suðurlandsbraut 16 108 Reykjavik - kt. 440169-0239 - Vefstjori: lensherra@leiklist.is