|
Forsagan
Leiklistarskóli Bandalags íslenskra leikfélaga hefur starfað í núverandi myndsíðan vorið 1997. Árlega síðan hefur skólinn starfað í 9 daga á ári, venjulega í júní og hefur verið boðið upp á mikinn fjölda námskeiða sem sótt hafa verið af á þriðja hundrað nemendum.
Starfsárið 2010
Árið 2010 markar tímamót í sögu Leiklistarskóla Bandalags íslenskra leikfélaga. Frá upphafi hefur skólinn átt aðsetur sitt að Húsabakkaskóla í Svarfaðardal en núna á þessu fjórtánda starfsári verður skólinn fluttur um set og settur að Húnavallaskóla í Húnavatnshreppi.
Að þessu sinni verða þrjú námskeið í boði og sem fyrr hefur skólanefnd lagt sig fram um að fá færustu kennara sem völ er á. Sumarið 2010 verður lögð áhersla á byrjendanámskeið. Ágústa Skúladóttir mun kenna Leiklist I, Sigrún Valbergsdóttir kennir Leikstjórn I og Þórhildur Örvarsdóttir verður með framhald af hinu vinsæla námskeiði frá því í fyrra um röddina í leikhúsinu út frá Complete Vocal Technique kerfinu.
Nánar hér.
Starfsárið 2009 Að þessu sinni verður lögð áhersla á námskeið fyrir þá sem hafa grunn eða reynslu af leiklist. Boðið er upp á framhaldsnámskeið í leikritun, kennari er Bjarni Jónsson sem fylgir hér eftir námskeiði sem hann hélt hjá okkur í fyrsta sinn í fyrra þar sem færri komust að en vildu. Þá verður Rúnar Guðbrandsson með námskeið fyrir þá sem eru reiðubúnir að reyna svolítið á sig! Þetta verður með svipuðu sniði og námskeið sem Rúnar hélt árið 2001 og lifir enn í minni þeirra sem sóttu. Skólanefnd er hér m.a. að mæta óskum nemenda sem sóttu sérnámskeið hjá Rúnari 2005 og 2008 og lýstu sérstaklega áhuga á að kafa dýpra í einhverja af þeim aðferðum sem kynntar voru. Að lokum er okkur einstök ánægja að bjóða velkomna í fyrsta sinn Þórhildi Örvarsdóttur sem verður með spennandi námskeið um röddina í leikhúsinu út frá Complete Vocal Technique kerfinu.
Þá verður Egill Ingibergsson með námskeið í lok maí sem nefnist Samþætting tækni í leikhúsinu.
Sjá nánar hér.
Starfsárið 2008 Námskeið haldin að Húsabakka dagana 7. til 15. júní: Að þessu sinni verður boðið upp á Leiklist II sem hefðbundið er að gera í kjölfar Leiklistar I. Kennari er Ágústa Skúladóttir en námskeiðin hennar hafa alltaf verið gríðarlega vinsæl og vel sótt. Þá bjóðum við velkominn aftur Rúnar Guðbrandsson sem mun bjóða upp á sérnámskeið fyrir reyndari leikara. Hann var síðast með svipað námskeið árið 2005 sem nemendur lofuðu í hástert. Þetta árið höfum við svo fengið Bjarna Jónsson til að bjóða upp á grunnnámskeið í leikritaskrifum en slíkt hefur ekki verið haldið síðan árið 2002. Þarna vonumst við til að koma til móts við vaxandi fjölda leikskálda innan Bandalags íslenskra leikfélaga. Sjá nánar hér.
Starfsárið 2007
Boðið er upp á þrjú námskeið í Svarfaðardalnum, Leiklist I, kennari Ágústa Skúladóttir, sérnámskeið fyrir leikara, kennari Stephen Harper og sérnámskeið fyrir leikstjóra, kennari Egill Heiðar Anton Pálsson. Í október verða tvö námskeið í leikhúsförðun, kennari Gréta Boða.
Sjá nánar hér.
Starfsárið 2006
Boðið er upp á námskeið fyrir leikstjóra og leikara að Húsabakka í Svarfaðardal dagana 10.-18. júní og fyrir förðunarfólk að Laugavegi 96 helgarnar 13.-15. og 27.-29. október. Kennarar verða Sigrún Valbergsdóttir, Ágústa Skúladóttir, Steinunn Knútsdóttir og Gréta Boða. Skráning í skólann hefst þann 15. mars.
Sjá nánar hér.
Starfsárið 2005 Námskeið haldið í Reykjavík helgina 8. til 10. apríl: Námskeið 1 Bardagatækni á sviði (Stage Fight) kennari Ine Camille Bjørnsten,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Information in English http://stagefight.klaki.net Námskeið haldin að Húsabakka dagana 11. til 19. júní: Námskeið 2 Framhaldsnámskeið fyrir leikara, Leiklist II, kennari Árni Pétur Guðjónsson,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Námskeið 3 Grunnnámskeið fyrir leikstjóra, Leikstjórn I kennari Sigrún Valbergsdóttir,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Námskeið 4 Sérnámskeið fyrir leikara kennari Rúnar Guðbrandsson,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Fyrirlestrahelgi í Hafnarfirði 1. og 2. október 2005
Starfsárið 2004 Námskeið nr. 1 Sérnámskeið, leikstjórar - kennari Sigrún Valbergsdóttir,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
9 nemendur. Lokið. Námskeið nr. 2 Sérnámskeið fyrir leikara - kennari Ágústa Skúladóttir,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
18 nemendur. Lokið. Námskeið nr. 3 Grunnnámskeið fyrir leikara - kennari Ásta Arnardóttir,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
16 nemendur. Lokið. Námskeið nr. 4 Leikritun, höfundasmiðja kennari Þorgeir Tryggvason,
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
8 nemendur. Lokið.
Starfsárið 2003 Námskeið nr. 1 Framhalds-sérnámskeið fyrir leikstjóra - 12 nemendur. Lokið. Námskeið nr. 2 Leikritun II - 9 nemendur. Lokið. Námskeið nr. 3 Hvernig segirðu sögu? - 16 nemendur. Lokið. Námskeið nr. 4 Leiklistarnámskeið fyrir unglinga, 1, 2 og leika! - Námskeiðið fellt niður vegna lítillar þáttöku. Námskeið nr. 5 Leikhúslýsing - Námskeiðið fellt niður vegna lítillar þáttöku. Námskeið nr. 6 Gervi og leikbúningar - 12 nemendur. Lokið. Helgarnámskeið í leikhúsförðun 31.1. til 2.2. 2003 Námskeiðið var haldið í Þjónustumiðstöð Bandalagsins að Laugavegi 96 í Reykjavík. Kennari var Gréta Boða og nemendur voru 9 talsins. Nánari upplýsingar
Starfsárið 2002
Skólinn var starfandi frá 5. til 13. júní. Þar var boðið upp á framhaldsnámskeiði fyrir leikstjóra, kennari Sigrún Valbergsdóttir, framhaldsnámskeið fyrir leikara, kennari Ásta Arnardóttir og námskeið í leikritun, kennari Karl Ágúst Úlfsson. Nemendur voru samtals 41. Námskeið, kennarar, aðstaða og fleira fróðlegt. Grunnnámskeið fyrir leikara Eitt af námskeiðunum sem haldin voru að Húsabakka í sumar var leiklist 2, grunnnámskeið fyrir leikara. Kennari var Ásta Arnardóttir og nemendur voru 16 talsins. Unnið var með leikritið Mávinn eftir Tsjéhkof sem grunn og völdu nemendurnir sér persónu fyrir námskeiðið sem þeir kynntu sér sérstaklega og unnu með. Vitanlega völdu fleiri en einn sér sömu persónuna og því voru 3 Arkadínur, 4 Trígorínar, 2 Tréplevar, 3 Nínur og 4 Möshjur þarna samankomin. Einn af hápunktum námskeiðsins var svo 90 mínútna langur spuni þar sem persónurnar hittust í 25 ára leikafmæli einnar Arkadínurnar og hér eru myndir sem Ásta tók af þessum spuna. Helgarnámskeið í leikhúsförðun 16. og 17. febrúar 2002 Gréta að kenna Skólinn byrjaði starfemi sína á árinu 2002 með námskeiði í förðun fyrir byrjendur, sem haldið var í þjónustumiðstöðinni að Laugavegi 96. Kennari var Gréta Boða. Hér getur þú skoðað myndir frá námskeiðinu.
Senda á:
|